Alþingi, the Icelandic Parliament, has signed a law-amendment giving the Finance minister the authority to extend a government guarantee to the British and Dutch authorities for the repayment of loans made by the British and Dutch to The Depositors´ and Investors´ Guarantee Fund of Iceland. The President of Iceland has refused to sign the law-amendment, resulting in its continuing validity being put to a national referendum.
In light of relative enormity of the debt being laid upon each Icelandic citizen, a money collection for the erection of a memorial to the Icesave-serfdom has been under way since December 2009. The names of those Parliamentarians who voted for the law-amendment, and those who abstained from voting or by other means arranged for themselves to be otherwise engaged at the time of the vote, will be engraved on the memorial. The memorial is intended to try to prevent history from repeating itself and to remind members of Parliament that their actions will not be forgotten. It is also a special reminder to Members of the Icelandic Parliament to follow their conviction as representatives of the people, not be bullied into acting out of accordance to their beliefs.
The collection has been successful. Participants have gathered close to a million ISK. People can make a pledge here on this website. A search is underway for an artist and a site for the memorial.
For further information, please contact Sigríður Andersen
Nú hefur verið samþykkt á Alþingi frumvarp um breytingu á lögum um ríkisábyrgð vegna Icesaveskuldbindingar Tryggingasjóðs innstæðna. Fjársöfnun til stuðnings byggingar minnisvarða um samþykkt Icesave-frumvarpsins hófst í desember þegar ljóst var að frumvarpið yrði samþykkt. Nöfn þeirra þingmanna sem greiða atkvæði með frumvarpinu, yrðu þannig greypt í stein um langa framtíð, sem og þeirra sem sitja hjá við atkvæðagreiðsluna eða koma sér undan þátttöku í henni. Jafnframt yrði á minnisvarðanum nafn forseta Íslands, sem undirritar lögin gegn eigin mælikvörðum. Nú er beðið staðfestingar forseta Íslands á lögunum.
Með minnisvarða þessum er ætlunin að reyna að koma í veg fyrir að sagan endurtaki sig. Minnisvarðinn verður áminning til framtíðarþingmanna um að verk þeirra gleymist ef til vill ekki. Sérstaklega ætti hann að vera þeim áminning um að fylgja sannfæringu sinni og víkja sér til að mynda ekki undan ábyrgð með hjásetu, fjarveru eða orlofi þegar afar mikilvæg mál koma til atkvæðagreiðslu.
Söfnunin hefur gengið vel. Þáttakendur hafa skráð sig fyrir hátt í einni milljón króna.
Hægt er að skrá sig fyrir fjárframlagi til byggingar minnisvarðans hér á síðunni. Kallað verður eftir fjárframlögum áður en ráðist verður í gerð minnisvarðans, um leið og liggur fyrir hver listamaðurinn er.
Ráðist verður í að finna góðan listamann til að skapa hann fyrir hóflega fjárhæð. Áhugasamir listamenn eru hvattir til að hafa samband við aðstandendur minnisvarðans. Óskað verður eftir stað fyrir minnisvarðann í Reykjavík. Önnur bæjarfélög koma þó einnig til greina.
Nánari upplýsingar má fá hjá Sigríði Andersen.